Sjómenn á togurum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa taka þátt í viðamikilli rannsókn Hreyfivísindaseturs Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands á einkennum hreyfiveiki. Þetta kemur fram á vefsíðu Samherja.

Hátæknibúnaður til rannsókna á sjóveiki og annarri hreyfiveiki var fluttur til Akureyrar vegna rannsóknarinnar. „Með sýndarveruleikatækni framkallar búnaðurinn hreyfingar sem eru svo raunverulegar að þátttakendur finna fyrir hreyfiveiki, eins og sjó- eða bílveiki,“ segir á samherji.is

Fleiri áhafnir á næstu dögum

Þá segir frá því að fram til þessa hafi um fjögur hundruð manns tekið þátt í rannsókninni. Það sé fólk sem hafi verið í landi í langan tíma.

„Hérna á Akureyri fáum við hins vegar sjómenn sem eru að koma úr veiðiferð, hafa sem sagt verið á sjó í töluverðan tíma. Togarinn Björg EA kom til löndunar snemma í morgun og sjómennirnir voru svo vinsamlegir að taka þátt í rannsókninni á meðan öll kerfin í líkamanum eru í raun enn stillt inn á veruna á sjónum. Síðan bætast við fleiri áhafnir á næstu dögum,” er haft eftir Hannesi Petersen, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Sjóveiki feimnismál meðal sjómanna

Karl Helgason, háseti á Björgu EA, var fyrstur til að taka þátt í rannsókninni á Akureyri.

„Nei, það er varla hægt að tala um að ég verði sjóveikur en í verstu veðrum finn ég þó fyrir smá velgju. Það er sjálfsagt að taka þátt í þessari rannsókn og vonandi verður í framtíðinni hægt að draga úr einkennum sjóveiki. Ég held að sjómenn tali ekki mikið um sjóveiki, ég er ekki frá því að þetta sé svolítið feimnismál innan stéttarinnar,“ er haft eftir Karli Helgasyni sem kveður búnaðinn sem notaður er við rannsóknina vera magnaðan.

„Aðkoma Samherja og sjómannanna er gríðarlega mikilvæg fyrir verkefnið og við erum þakklát fyrir stuðninginn og þátttöku þeirra. Engar sambærilegar rannsóknir hafa áður verið gerðar hér á landi, niðurstöður rannsóknarinnar koma til með að auka þekkingu okkar á hreyfiveiki og þar með talið sjóveiki,“ segir Hans Petersen.