Áætlað að hátt í sjö þúsund hafi skoðað Fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík þegar Fiskidagurinn mikli var um helgina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja þar sem segir að fiskvinnsluhúsið hafi vakið alþjóðlega athygli fyrir framúrskarandi tæknilausnir og góðan aðbúnað starfsfólks.
„Í mínum huga undirstrikar hátíðin með skýrum hætti að Dalvíkingar eru stoltir af því að sjávarútvegur er helsta atvinnugreinin, enda eru þeir sjómenn og fiskvinnslufólk í fremstu röð,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, sem þakkar þeim sem sjá um framkvæmd hátíðarinnar kærlega fyrir einstaklega farsæla samvinnu í gegn um árin. „En fyrst og fremst er Fiskidagurinn mikli risastórt heimboð íbúanna og þökkum við Dalvíkingum fyrir óviðjafnanlegar móttökur."