Samskip hf. hafa hlotið gullvottun EcoVadis á sviði samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni. EcoVadis er alþjóðlega viðurkenndur vottunaraðili og er úttekt fyrirtækisins afar ítarleg og nær til frammistöðu fyrirtækja um allan heim. Með viðurkenningunni eru Samskip hópi efstu 5% fyrirtækja á heimsvísu sem vottuð eru af EcoVadis.

„Sjálfbærni er samofin kjarnastefnu Samskipa heima og erlendis og sjálfbærnimarkmið höfð að leiðarljósi hvarvetna í starfseminni,“ segir Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á Íslandi.

„Víða hefur náðst góður árangur, svo sem með minni útblæstri í skipaflutningum, sem á fimm árum hefur dregist saman um 35,1 prósent. Gullvottun EcoVadis er staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur og er okkur hvatning til áframhaldandi góðra verka.“

„Það er gaman að fá gull og við fögnum mjög staðfestingu EcoVadis á því að Samskip eru í fremstu röð fyrirtækja þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og jákvæðu framlagi til samfélagsins. Samskip settu sér nýja stefnu í umhverfismálum 2019 og fengu ári síðan silfurvottun EcoVadis. Gullvottun nú endurspeglar áherslu okkar á að ná árangri á sviði sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar,“ segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa.

EcoVadis er með sérhæfingu á sviði samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja og byggir mælir frammistöðu þúsunda fyrirtækja um heim allan. Staðlaðar niðurstöður auka gagnsæi og auðvelda samanburð og gera fyrirtækjum auðveldara að bæta frammistöðu sína og innleiða umbætur.

Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem býður flutningalausnir og tengda þjónustu á landi, sjó og í lofti með hagkvæmni og sjálfbærni að leiðarljósi. Á Íslandi og í Færeyjum býður fyrirtækið upp á heildarþjónustu í flutningum og svo fjölþátta flutningsþjónustu um alla Evrópu og frystiflutninga og flutningsmiðlun um allan heim. Hjá Samskipum á Íslandi starfa um 500 starfsmenn í fjölbreyttum störfum.