Frændurnir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja hf., hafa stofnað félagið Drift EA með það að markmiði að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. Sagt er að frumkvöðlar og fyrirtæki fái aðstöðu og stuðning hjá Drift við að vinna hugmyndum sínum framgang innan og utan landsteinanna.

Eftirfarandi er úr tilkynningu vegna stofnunar Driftar:

„„Á þessu ári eru liðin 40 ár frá því gengið var frá kaupum á Samherja hf. og Guðsteini GK breytt í frystitogarann Akureyrina EA. Frá þeim tímamótum hefur Samherji verið með stærstan hluta starfsemi sinnar við Eyjafjörð.

Drift EA er stofnað í tilefni þessara tímamóta og í þakklætisskyni við íbúa og fyrirtæki á starfssvæði Samherja. Tilgangurinn með stofnun Driftar EA er að gefa til baka til samfélagsins en um leið byggja upp ný fyrirtæki og atvinnugreinar á Eyjafjarðarsvæðinu.

Í starfsemi Driftar EA verður áhersla lögð á verkefni á sviði matvælaframleiðslu, heilbrigðis- og lækningavöruframleiðslu, líftækni, hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveg og grænna lausna.

Drift EA verður með aðsetur í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri en fjárfestingafélagið Kaldbakur ehf., sem er að hluta til í eigu sömu aðila, festi kaup á húsinu í nóvember á síðasta ári.

Við undirbúning stofnunar félagsins hefur verið haft samráð við erlenda og innlenda aðila á ýmsum sviðum nýsköpunar. Sú vinna mun halda áfram á næstu mánuðum.

Vilja skapa ný störf í Eyjafirði til framtíðar

Þorsteinn Már Baldvinsson segir að hjá Drift EA verði í forgangi verkefni sem geta ýtt undir verðmætasköpun og framtíðarvöxt í atvinnulífi á Eyjafjarðarsvæðinu.

„Við höfum alltaf verið með höfuðstöðvar Samherja á Akureyri, gert skip félagsins út héðan og verið með vel búin vinnsluhús á Akureyri og á Dalvík. Nú viljum við skapa frjóan jarðveg fyrir nýsköpun í þessu sögufræga húsi við Ráðhústorgið á Akureyri og styðja þannig enn frekar við uppbyggingu atvinnulífsins í okkar nærsamfélagi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Táknrænt verkefni

Kristján Vilhelmsson segir að með starfsemi Driftar EA verði fyrst og fremst stefnt að uppbyggingu verkefna á meginstarfssvæði Samherja.

„Saga Samherja er í eðli sínu saga frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækis. Við vildum minnast 40 ára afmælisins á táknrænan hátt og með því stuðla að því að nýjar sögur af þessu tagi verði sagðar hér í okkar heimabyggð. Núna í desember eru einmitt liðin 40 ár síðan Akureyrin EA 10 fór í sína fyrstu veiðiferð. Markmiðið er að gamla Landsbankahúsið verði miðstöð nýsköpunar hér á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segir Kristján Vilhelmsson,“ segir á vef Samherja.