Nú er sá tími ársins sem mestur erill er hjá Grupeixe, framleiðslu- og dreifingarfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal. Frá því seint á haustin og fram að jólum vilja allir tryggja sér góðan saltfisk í jólamatinn en saltfiskur er algjört lykilatriði í jólahaldi Portúgala og hápunkturinn á þeim mat sem hafður er á hátíðarborðum. Sagt er frá þessum á vefnum vsv.is.

5.000 tonn á aðfangadagskvöld

Portúgalir eru eru mesta þorskneysluþjóð heimsins og er ársneyslan um 110.000 tonn en nánast allur sá þorskur er saltfiskur. Þar af eru um ​5.000 tonn borðuð á aðfangadagskvöld! Það er því nóg að gera hjá Grupeixe við að sjá viðskiptavinum fyrir nægum fiski, hvort sem það eru veitingahús, verslanir eða einstaklingar. Mikið er um það að einstaklingar komi til Grupeixe og kaupi fisk á staðnum en sérstök afgreiðsla er þar til að taka á móti þeim.

Grupeixe er með sérstaka afgreiðslu fyrir almenna neytendur.
Grupeixe er með sérstaka afgreiðslu fyrir almenna neytendur.

Meðfylgjandi myndir eru frá því síðastliðinn miðvikudag, 11. desember, en þá kom 50 manna hópur við, til þess að kaupa jólasaltfisk. Um var að ræða hóp eldri borgara sem koma frá nágrenni Porto, í tæplega klukkustundar akstursfjarlægð frá Gafanha de Nazaré, þar sem Grupeixe er staðsett. ​Fólkið var í skemmtiferð um svæðið og enduðu ferðina á að koma við og gera innkaup hjá Grupeixe. Það því mikill handagangur í öskjunni á meðan allir voru fá sinn jólafisk!

Framundan eru áfram ​líflegir og annasamir dagar hjá Grupeixe, við að undirbúa fisk, pakka honum og afgreiða, allt fram að jólum.