Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð sem heimilar aukna aflaheimild upp á 2.000 tonn af þorski á yfirstandandi strandveiðitímabili. Heildarráðstöfun í þorski til strandveiða verður því 12.000 tonn í stað 10.000 tonna.

Þetta kemur fram á vefmatvælaráðuneytisins.

„Með þessari aukningu hækkar hlutfall strandveiða á þorski upp í rúm 55% af þorski innan félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Svo stórum hluta heimilda hefur ekki verið ráðstafað til strandveiða áður.“

Aukningin er sögð koma af skiptimarkaði, þar af 1.300 tonn af þorski sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl.

„Þessi ákvörðun er tekin til að rétta af þann halla sem er afleiðing þess fyrirkomulags sem hefur verið á strandveiðum, þar hafa sum byggðarlög borið skarðan hlut frá borði“ er haft eftir matvælaráðherra.