Kolmunnaveiðarnar í færeysku lögsögunni ganga áfram vel og skipin koma hvert af öðru til löndunar með góðan afla. Hákon EA kom til Neskaupstaðar í morgun með rúm 1.600 tonn og Barði NK er væntanlegur þangað með um 2.000 tonn. Þá er Börkur NK á leiðinni til Seyðisfjarðar með rúmlega 3.200 tonn.

Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Hjörvars Hjálmarssonar, skipstjóra á Berki og spurði fyrst hvernig veiðiferðin hefði gengið fyrir sig.

Stærsta holið 650 tonn

„Veiðiferðin gekk vel. Aflinn fékkst í sex holum og var það stærsta 650 tonn. Það var ekki lengi dregið eða allt niður í fimm tíma. Í sannleika sagt var mokveiði eins og oft hefur verið að undanförnu. Það er ekki hægt að kvarta þegar skipin eru að fá yfir 1.000 tonn á sólarhring. Staðreyndin er sú að það er miklu meiri kolmunni á ferðinni en verið hefur undanfarin ár. Að þessu sinni vorum við að veiða í Ræsinu vestan við Færeyjar og við fylltum áður en fiskurinn gekk inn í lokað hólf. Þegar fiskurinn gekk inn í hólfið færðu skipin sig austur fyrir eyjarnar en það voru aflafréttir þaðan. Nú er farið að síga á seinni hluta vertíðarinnar en það verður spennandi að fylgjast með hvort kolmunninn gengur ekki í verulegum mæli inn í íslenska lögsögu. Ef á að veiða hann í íslenskri lögsögu þarf einhver kvóti að vera eftir en fiskurinn verður feitari og betri þegar hann veiðist þar. Menn hljóta að vera afar ánægðir með kolmunnaveiðina að undanförnu, skipin hafa fiskað vel og veður hefur verið afar gott. Það er ekki undan mörgu að kvarta,“ segir Hjörvar.