Hinu nýja skipi Þorbjarnar hf., Huldu Björnsdóttur GK 11, var fagnað vel og innilega við komuna til Grindavíkur.

Að því er segir á vef Grindavíkurbæjar lagði mikill fjöldi bæði heimamanna og annarra gesta lagði leið sína niður á höfn í gær til að skoða hið nýja og glæsilega skip sem smíðað var á Spáni.

Hljómsveit lék fyrir gesti

„Veður var með besta móti, spegilsléttur sjór, sól og léttskýjað. Móttökuveislan var hin glæsilegasta. Um borð var bakkelsi og hátíðarkaka frá Grindavíkurhöfn en við hafnarbakkann var Issi að bjóða gestum upp á sitt vinsæla Fish n´chips. Í húsi löndunarþjónustu Klafars var búið að koma upp sviði þar sem hljómsveit spilaði fyrir gesti,“ segir á grindavik.is.

Þá segir að þegar búið hafi verið að blessa skipið haf forseti bæjarstjórnar, Ásrún Helga Kristinsdóttir, fært stjórn Þorbjarnar blómvönd og sérstakan afmælisplatta í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli bæjarins í ár.