Jóhanna Gísladóttir GK, togari Vísis, hefur landað tvisvar í heimahöfn í Grindavík að undanförnu með skömmu millibili.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir að Jóhanna Gísladóttir hafi landað fullfermi á laugardag og aftur í gær.

„Við lönduðum á Skagaströnd og héldum til veiða þaðan. Það var byrjað út af Vestfjörðum, í grunnkantinum út af Patreksfirði. Þar var aflinn í lagi til að byrja með en minnkaði síðan. Við færðum okkur og reyndum út af Snæfellsnesi en þar var ekkert að hafa. Þá var haldið á Eldeyjarbankann og þar var þokkalegasti afli, góður fiskur – þorskur og karfi. Þegar komið var á Eldeyjarbankann var komið blíðuveður og mikið voru menn fegnir að vera lausir við bræluskítinn sem ríkt hefur,” er haft eftir Smára Rúnari Hjálmtýssyni sem var skipstjóri í fyrri túrnum.

Beint á Eldeyjarbankann í algerri blíðu

„Við héldum beint á Eldeyjarbankann og fylltum skipið á tæpum tveimur sólarhringum. Þarna fékkst þorskur og karfi. Þetta var stuttur túr og það var veitt í algerri blíðu. Við munum halda til veiða strax að löndun lokinni,” er síðan haft eftir Einari Ólafi Ágústssyni skipstjóri í síðari túrnum.