Nýjustu tölur um afla strandveiðibáta benda til að ef aflaviðmiðun verður ekki aukin verða strandveiðar stöðvaðar nokkru fyrr en á síðasta ári. Samkvæmt tölum frá Fiskistofu er búið að veiða um 8 þúsund tonn af 10 þúsund tonna þorskheimildum.
Í síðustu viku fundaði Landssamband smábátaeigenda með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Á fundinum óskuðu forsvarsmenn LS eftir að ráðherra kæmi í veg fyrir ótímabæra stöðvun strandveiða.
„Út frá laganna bókstaf verður það vart gert með öðrum hætti en að ráðherra hækki aflaviðmiðun. Ráðherra óskaði eftir formlegu erindi frá LS um málefnið sem nú er til skoðunar í matvælaráðuneytinu,“ segir á heimasíðu LS.
Meðal þess sem fram kemur í erindinu er að strandveiðar varða hagsmuni u.þ.b. eitt þúsund aðila. Þar segir að miðað við þorskafla sl. tíu daga gæti útgefinni aflaviðmiðun, 10.000 tonnum, verið náð í strandveiðivikunni 10.-13. júlí.
„Hér með er þess farið á leit við yður að þér komið í veg fyrir stöðvun veiðanna með því að hækka aflaviðmið um 4.000 tonn og tryggja með því jafnræði milli landshluta. Það er mat LS að svigrúm til þess sé fyrir hendi og því ekki eftir neinu að bíða með að tilkynna ákvörðun yðar þeim 730 smábátaútgerðum sem nú stunda strandveiðar.“