Uppsjávarskipin Aðalsteinn Jónsson SU 11 og Polar Ammassak eru nú við loðnuleit suðaustur af landinu. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson sem hélt áfram upphaflegum loðnuleiðangri fyrir vestan land er hins vegar komið til hafnar.
Eins og fram kom á vef Fiskifrétta í gær binda menn enn vonir við að loðna finnist þótt fyrstu bráðabirgðaniðurstöður Hafrannsóknastofnunar frá því 24. janúar hafi ekki gefið tilefni til bjartsýni. Bent var á það á Facebooksíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í gær að orðið hafi vart við fullorðna loðnu á nokkuð stóru svæði fyrir austan land í síðustu viku.
„Þéttleiki hennar var þar einnig mestur, einkum syðst á leitarsvæðinu. Því munu Polar og Aðalsteinn líklega halda á miðin í kvöld og leiti betur. Þá stendur til að þau kanni líka svæði nær landi, ef ske kynni að loðnan væri búin að færa sig þangað,“ sagði á sfs.is.