Samkvæmt nýjustu talningu var fjöldi landsela við Ísland um 10.319 dýr. Hafrannsóknastofnun hefur birt niðurstöður talningarinnar sem gerð var árið 2020.

Eftirlit með stofninum hófst árið 1980 og var fjöldinn þá 33.327 selir, þannig að nú fækkað hefur í selastofnunum um 69% síðan þá.

Mesta fækkunin fyrsta áratuginn

„Talningar benda til þess að mesta fækkunin hafi átt sér stað á fyrsta áratug mælinganna, þegar stofninn dróst saman um 50% og orsökin talin vera veiðar. Síðan þá hefur fækkun í selastofninum verið hægari og fjöldinn sveiflast lítillega,“ segir Hafrannsóknastofnun í tilkynningu.

„Staða stofnsins er viðkvæm og ýmsir þættir sem þar hafa áhrif, s.s. meðaflaveiðar, viðvera og ágangur manna, umhverfisþættir, mengun, loftslagsbreytingar og sveiflur í fæðutegundum sela."

Yfirlit um talningar og sveiflur í stofnstærð landsels á tímabilinu 1980 til 2020 er birt í nýrri vísindagrein eftir Söndru Granquist, sjávarspendýrasérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og deildarstjóra selarannsóknadeildar hjá Selasetri Íslands. Greinin nefnist „The Icelandic harbour seal (Phoca vitulina) population: trends over 40 years (1980–2020) and current threats to the population“.

Mikilvægi talninga

Á þessu tímabili voru alls framkvæmdar 13 talningar úr lofti yfir selalátur á tímabilinu frá júlí til ágúst.

„Niðurstöður talninganna undirstrika mikilvægi áframhaldandi talninga og að sinna rannsóknum sem kunna að hafa áhrif á þróun stofnsins,“ segir í tilkynningunni.