Tvö þúsund og tvö hundruð tonnum af kolmunna var landað úr Berki NK á Seyðisfirði á laugardaginn. Daginn áður var tólf hundruð tonnum af kolmunna landað þar úr Barða NK.
„Við vorum fimm daga að veiðum og það var býsna rólegt framan af,“ segir Runólfur Runólfsson, skipstjóri á Barða í viðtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Veitt hafi verið syðst í Rósagarðinum og töluverður dagamunur verið á aflanum.
„Þetta var býsna blettótt og við vorum ekkert sérstaklega heppnir í þessum túr,“ segir Runólfur. Betur hafi gengið hjá Berki.
„Í túrnum var stærsta holið hjá okkur 300 tonn en hið minnsta 130 tonn. Það skiptir miklu máli að veiða kolmunnann þarna því þetta er innan íslenskrar lögsögu og því eiga menn að vera þolinmóðir þó aflinn sé ekki alltaf upp á það besta. Það þarf líka að hafa það í huga að oft hefur besta veiðin þarna verið í nóvembermánuði. Við munum halda áfram á kolmunnanum en það er spáð bölvaðri brælu á þriðjudagsnótt og við munum ekki fara út fyrr en eftir hana,“ segir Runólfur á Barða á vef Síldarvinnslunnar.