Um 100 manns mættu á Heimsóknardag hjá KAPP Skaganum sem haldinn var í gær í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Krókatúni á Akranesi.

Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP, og Ólafur Karl Sigurðarson, framkvæmdastjóri KAPP Skagans, tóku á móti gestum og kynntu þeim starfsemina ásamt því að gefa þeim innsýn í fyrstu mánuði rekstursins sem og framtíðaráformin. Síðan var tekinn göngutúr um framleiðslusalinn auk þess sem boðið var upp á léttar veitingar.

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, og Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP.
Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, og Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP.

Kærkomið fyrir Skagamenn

Gjaldþrot Skagans 3X á síðasta ári var högg fyrir atvinnulíf á Akranesi enda misstu 128 manns vinnuna. Það var því kærkomið fyrir Skagamenn þegar KAPP keypti eignir þrotabúsins í október sl. og úr varð félagið KAPP Skaginn, sem hóf formlega starfsemi 1. nóvember.

,,Við erum mjög ánægð að við séum að leggja af stað aftur í vegferð með öflugu fyrirtæki sem KAPP er. Við höfum miklar væntingar til KAPP Skagans. Þetta er veruleiki sem við vorum ekki endilega að reikna með um mitt sumar í fyrra," segir Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi.

Gestir fengu skoðunarferð um húsakynni Kapp Skagans.
Gestir fengu skoðunarferð um húsakynni Kapp Skagans.

Verkefnastaðan góð

,,Vegferð eins og sú sem hér hefur verið hafin getur ekki átt sér stað nema í samvinnu og með stuðningi margra aðila. Því fannst okkar tilvalið að bjóða haghöfum og hagsmunaaðilum í heimsókn til okkar, til þess að kynna fyrir þeim verkefni síðustu mánaða, framtíðarsýn og gefa innsýn inn í reksturinn. Það er gaman að fá svo marga í heimsókn til okkar á þessum góða og fallega febrúardegi." segir Ólafur Karl, framkvæmdarstjóri KAPP Skagans og bætir við að nýja félagið hafi fengið hlýjar móttökur á Akranesi. ,,Verkefnastaða okkar er góð og pantanir líta vel út,. Við finnum einnig mikinn meðbyr úr geiranum og hér í heimabyggð félagsins."

Ólafur Karl Sigurðsson, framkvæmastjóri KAPP Skagans, og Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP, héldu tölu.
Ólafur Karl Sigurðsson, framkvæmastjóri KAPP Skagans, og Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP, héldu tölu.