Makrílveiðar Íslendinga eru komnar í gang. Að því er segir á vefsíðu Samherja hélt uppsjávarskip félagsins, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, í gærkvöld frá Akureyri til veiðanna.

Segir í tilkynningu Samherja að fyrstu íslensku skipin hafi byrjað leit og veiðar fyrr í vikunni og að þau megi veiða samtals 125 þúsund tonn. Þar af séu veiðiheimildir Vilhelms Þorsteinssonar EA hátt í 14 þúsund tonn.

Líklega í Smuguna

Haft er eftir Guðmundi Þ. Jónssyni skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni, að með fleiri skipum styttist væntanlega í að vertíðin hefjist fyrir alvöru. Um tveir mánuðir eru nú liðnir frá því kolmunnavertíð lauk.

„Við verðum að vona hið besta í upphafi vertíðar. Skipin sem eru komin á miðin eru suðaustur og austur af landinu en ég reikna fastlega með því að fara í Smuguna. Siglingin í Smuguna er nokkuð löng, tekur um einn og hálfan sólarhring og er lykilatriði við veiðar þar að útgerðir hafi á að skipa góðum og öflugum flota,“ segir Guðmundur á vefSamherja.

Samstarf við önnur skip hafi skilað góðum árangri

Síðustu árin hafa skip Samherja og Síldarvinnslunnar unnið saman á miðunum, sem hefur gefið góða raun að sögn Guðmundar.

„Aflanum er safnað saman í eitt skip, með því móti kemst fiskurinn mun ferskari til vinnslu í landi. Samstarfið sparar líka umtalsverða orku, því með þannig vinnulagi er ekki verið að sigla í land með ónýtta burðargetu. Ég tel að þetta samstarf hafi gengið vel, markmiðið er alltaf að hámarka verðmæti aflans. Eins og ég segi, þá er ég þokkalega bjartsýnn á komandi vertíð, upphaf hverrar vertíðar er að vísu oft háð nokkurri óvissu. Og þannig er staðan akkúrat núna. Þessir þættir hafa ekkert breyst með árunum,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, á samherji.is.