Huginn VE, uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, var að koma úr veiðiferð þegar Óskar P. Friðriksson mundaði myndavél sína í björtu og stilltu veðri við Vestmannaeyjahöfn í síðustu viku. Þarna má líka greina ísfiskarann Breka VE og Sighvat Bjarnason VE ásamt ísfisktogaranum Bylgju VE sem gerður er út af samnefndri útgerð í Eyjum sem er eitt þriggja sjálfstæðra útgerðarfélaga sem eftir eru í Eyjum.