Landhelgisgæslan minnir á að slæm veðurspá sé í gildi næstu daga auk þess sem stórstreymi sá á morgun og hvetur til árverni.
„Veðurstofan hefur gefið út veðurviðvaranir fyrir landið auk þess sem stormviðvaranir eru í gildi fyrir svo til öll spásvæði til sjávar. Stórstreymi er á morgun, föstudag, og vegna slæmrar veðurspár má gera ráð fyrir að næstu daga geti áhlaðandi vegna ölduhæðar og lækkandi loftþrýstings aukið sjávarhæð umfram það sem sjávarfallaútreikningar gefa til kynna,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar sem hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafinu og til þess að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.