Hulda Björnsdóttir GK 11, nýr ísfisktogari Þorbjarnar hf., var afhent eigendum við stutta athöfn í Gijón á Spáni, í morgun. Ráðgert er að sigla skipinu áleiðis til Grindavíkur annað kvöld og gæti það því verið komið í heimahöfn um eða eftir næstu helgi. Myndina að neðan tók Þórhallur Gunnlaugsson, eftirlitsmaður með smíði skipsins, af fulltrúum Þorbjarnar hf. og Armon skipasmiðastöðvarinnar í Gijón við samnings um afhendinguna í morgun.