Tvö hrognkelsi (Cyclopterus lumpus), sem merkt voru austur af Íslandi, syntu 1.510 kílómetra og 1.612 kílómetra til Danmerkur til að hrygna.
Ekki var vitað áður að hrognkelsi syntu svo langar vegalengdir segir Hafrannsóknastofnun sem vitnar til greinar sem birtist nýlega í Journal of Fish Biology.
„Hrognkelsi, sem voru merkt í Irmingerhafi voru endurheimt hér við land, sýna að hrognkelsi sem hrygna við Ísland nýta Irmingerhaf sem fæðuslóð. Í greininni kemur einnig fram að Noregshaf er sameiginlegt fæðusvæði fyrir nokkra mismunandi stofna hrognkelsa,“ segir í færslu á vef Hafrannsóknarstofnunar.
Merktu 2.750 hrognkelsi
„Á meðan á rannsókninni stóð, yfir sex ára tímabil, voru 2.750 hrognkelsi merkt í Irmingerhafi við Ísland og í Noregshafi. Þar af endurheimtust 17 fiskar. Fjórir þeirra veiddust aftur í meira en 1.000 km fjarlægð frá merkingarstað, sem sýnir að það er algengt að hrognkelsi syndi langar vegalengdir á milli fæðuslóðar að sumarlagi á hafi úti og hrygningarstöðva við ströndina vorið eftir,“ segir í færslunni.
Þá segir að í rannsókninni komi fram að hrognkelsi, sem voru merkt í Irmingerhafi og norður af Íslandi, hafi veiðst aftur við Ísland, en að engir þeirra fiska sem voru merktir í Noregshafi hafi endurheimst við Ísland. „Þessi munur á heimtuhlutföllum á mismunandi svæðum bendir til þess að hærra hlutfall hrognkelsa úr Irmingerhafi og norður af Íslandi hrygni í kringum Ísland samanborið við hrognkelsi á öðrum svæðum.“
Noregshaf mikilvægt fyrir hrognkelsi
Noregshaf er sagt vera mikilvæg fæðuslóð hrognkelsa. „Tveir fiskar sem voru merktir austur af Íslandi, voru veiddir aftur við strendur Danmerkur, og hafði annar þeirra fiskur synt 1612 km frá merkingu og fram að því að hann heimtist aftur. Endurheimtur þessara tveggja fiska í Danmörku sýnir að hluti hrognkelsastofnsins, sem hrygnir í Danmörku, nýtir Noregshafið sem fæðuslóð og að Noregshaf er sameiginlegt fæðusvæði fyrir nokkra aðgreinda stofna hrognkelsa.“