Systurskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Börkur NK hafa nú bæði komið til Neskaupstaðar með fullfermi af kolmunna úr færeysku lögsögunni. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

„Vilhelm kom á laugardag og Börkur í morgun. Bæði skip eru með 3.100 – 3.200 tonn og er landað úr þeim nánast jafnóðum og aflinn er unninn enda er kolmunninn best geymdur kældur um borð í skipunum,“ segir á svn.is þar sem rætt er við skipstjóra skipanna tveggja auk verksmiðjustjórans.

Fínn túr og allir spenntir að komast heim um jólin

Guðmundur Þ. Jónsson.
Guðmundur Þ. Jónsson.

Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni, er sagður hafa verið mjög ánægður með veiðina. Aflinn hafi fengist í sjö holum og það hafi verið frá 220 tonnum og upp í 600 tonn í holi. „Þetta var hinn fínasti túr og nú eru jólin framundan. Það eru allir spenntir að komast heim fyrir hátíðar,” er haft eftir Guðmundi.

Undir þetta tekur Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, túrinn hafi verið virkilega góður.

„Við fengum aflann í níu holum og þau voru misjafnlega stór eða frá 220 tonnum og upp í 600 tonn. Það var dregið í 14 – 15 tíma. Þetta telst vera mjög góð veiði en þetta er þó ekki sama mokið og var áður en við komum á miðin. Veðrið í túrnum var eins og best gerist en veiðisvæðið er austsuðaustur af Færeyjum. Nú erum við að dytta að veiðarfærum og tryggja að allt sé klárt þegar haldið verður til veiða á nýju ári. Síðan verður byrjað að landa í fyrramálið og að því loknu verður komið jólafrí. Nú bíða allir eftir loðnufréttum og menn vona heitt og innilega að það verði loðnuvertíð – það væri svo óskaplega gott að fá einhver tonn af loðnunni,” er eftir Hálfdani.

Feitur og flottur fiskur segir verksmiðjustjórinn

Hafþór Eíríksson. Mynd/Hjörtur Vilhjálmsson/svn.is
Hafþór Eíríksson. Mynd/Hjörtur Vilhjálmsson/svn.is

Þá er haft eftir Hafþóri Eiríkssyni, verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað, að hráefnið sem skipin komu með væri hið besta.

„Þetta er frábært hráefni, fiskurinn er feitur og flottur og það gengur mjög vel að vinna hann,” segir Hafþór sem kveðst reikna með að vinnslu á aflanum ljúki á föstudaginn.