Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki á fiskveiðiskip fyrir fiskveiðiárið 2024/2025. Heildarúthlutun er tæp 320 þúsund þorskígildistonn.

Aflamarki var úthlutað á 344 skip í eigu 274 aðila. Úthlutun í þorski er tæp 168 þúsund þorskígildistonn en var tæp 166 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 38 þúsund þorskígildistonn og lækkar um 16 þúsund þorskígildistonn milli ára, en þá lækkun má rekja til þess að þorskígildisstuðull ýsu lækkaði úr 0,93 í 0,64 á milli ára.

Fyrirtæki með hæstu úthlutunina

  • Brim hf. 9,55%
  • Samherji Ísland hf. 8,72%
  • Ísfélag hf. 6,98%
  • Fisk Seafood ehf. 6,10%
  • Þorbjörn hf. 5,43%

Skip með hæstu úthlutunina

  • Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.305 þorskígildistonn
  • Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 10.006 þorskígildistonn
  • Drangey SK 2 (2893), FISK-Seafood ehf. með 6.786 þorskígildistonn

5,3% skiptast með eftirfarandi hætti

  • Skel og rækjubætur 1.993 tonn
  • Byggðakvóti til fiskiskipa 5.645 tonn
  • Byggðakvóti Byggðastofnunar 6.302 tonn
  • Frístundaveiðar 200 tonn
  • Strandveiðar 11.100 tonn
  • Línuívílnun 1.835 tonn
  • Nýliðun vegna grásleppu 65 tonn

Úthlutun skel- og rækjubóta hefur þegar farið fram.