Morenot Ísland, dótturfélag Hampiðjunnar, hefur nú verið sameinað Hampiðjan Ísland. Sameiningin er mikilvægt skref í því að straumlínulaga rekstur, ná fram rekstrarlegri hagkvæmni og auka vöru- og þjónustuframboð Hampiðjunnar Ísland þegar kemur að útgerðarvörum og mæta þannig enn betur þörfum sjávarútvegsins á Íslandi, eins og fram kemur í frétt frá Hampiðjunni.

Löng saga í íslenskum sjávarútvegi

Morenot Ísland ehf. var upprunalega stofnað 1978 undir heitinu Sjóvélar ehf. og fyrirtækið á sér því langa sögu í íslenskum sjávarútvegi. Í byrjun árs 2017, eftir að Mørenot Fishery í Noregi eignaðist meirihluta í fyrirtækinu, var nafninu breytt í Morenot Ísland ehf. Hampiðjan eignaðist Mørenot samstæðuna í Noregi á síðasta ári og þá varð Morenot Ísland dótturfyrirtæki Hampiðjunnar.

Markmið Morenot Ísland hefur verið að vera leiðandi í þjónustu og sölu á vörum fyrir línuflotann með Dyrkorn fiskilínunni og Catch krókunum og hefur það byggt upp sterka stöðu á íslenskum markaði. Öll vörumerki fyrirtækisins eru rótgróin hér á landi auk þess sem fyrirtækið þróar og framleiðir útbúnað til línuveiða, línubeitningavélar, línubursta og rafdrifin línuspil sem hafa reynst afar vel.

Enn breiðara úrval

Hampiðjan Ísland er þekkt fyrir breitt vöruúrval í veiðarfærum og rekstrarvörum til útgerðar og nú mun það aukast enn frekar með þeim vörum sem Morenot Island hefur boðið. Þessi sameining ásamt sameiningu rekstrarvörudeildar Voot í síðasta mánuði við Hampiðjan Ísland gerir Hampiðjan Ísland að enn öflugri birgja fyrir íslensk útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki og fyrirtækið sinnir nú þörfum þeirra allra, allt frá þeim smæstu til þeirra stærstu.

Verslanir Hampiðjunnar í Reykjavík, Ísafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum munu áfram vera mikilvægir miðpunktar fyrir þjónustu og dreifingu vara og verslanirnar á Akureyri og í Ólafsvík munu áfram þjóna sínum svæðum, með áherslu á sérhæfðar vörur fyrir sín bæjarfélög.

Rekstur og vöruhús sameinaðs fyrirtækis verður staðsett í höfuðstöðvum Hampiðjunnar á Skarfabakka í Sundahöfn og tilfærslan mun ekki fela í sér miklar breytingar fyrir viðskiptavini og birgja.