Hákon ÞH, nýtt uppsjávarskip Gjögurs hf., var sjósett hjá Karstensens Skibsværft í Gdansk í Póllandi í dag. Þar er að auki verið að smíða annað uppsjávarskip fyrir Skinney-Þinganes sem á að vera tilbúið til afhendingar 2025. Bæði verða skipin með aðalvélum frá Wärtstilä og afl þeirra er 5.200 kW. Skrúfan verður fjórir metrar í þvermál.

Wärtstilä 8V31 vélin fékk á árinu 2015 viðurkenningu af Heimsmetabók Guinness sem skilvirkasta fjórgengisvél heims.
75,4 metra löng
Skipin verða 75,4 metrar á lengd og 16,5 metrar á breidd. RSW tankarnir eru 2.425 rúmmetrar. Skip Skinneyjar-Þinganess verður þannig hannað að djúpristan verði sem minnsta eða um 6,5 metrar sem kemur til vegna sérstakra aðstæðna við innsiglinguna til Hafnar í Hornafirði.
Upphaflega stóð til að skip Skinneyjar-Þinganess yrði afhent á undan skipi Gjögurs en fyrirtækin höfðu skipti sín á milli þannig að síðarnefnda fyrirtækið fær sitt skip afhent fyrr en ráð var fyrir gert.

Skinney-Þinganes gerir nú út tvö uppsjávarskip; Ásgrím Halldórsson SF og Jónu Eðvalds SF, en auk þess fjögur togveiðiskip og einn línubát. Gjögur gerir út uppsjávarfrystiskipið Hákon EA, sem smíðaður var í Chile 2001 og togbátana Vörð EA og Áskel EA sem voru hluti af sjö skipa raðsmíðaverkefni Vard skipasmíðastöðvarinnar og komu til landsins 2019.