Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs hækkaði á milli áranna 2021 og 2022. Frá árinu 2021 hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 34,8% í 37%, í fiskveiðum hækkaði það úr 23,6% árið 2021 í 24,6% af tekjum árið 2022 og í fiskvinnslu úr 18,1% í 21,1%. Segir frá þessu í frétt frá Hagstofu Íslands.

Eignir 1.047 milljarðar

Hreinn hagnaður (EBT) þessara fyrirtækja samkvæmt árgreiðsluaðferð nam 26,3% árið 2022 samanborið við 22% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 85 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 35 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn tæpum 88 milljörðum króna eða 27,3% af tekjum árið 2022 borið saman 27% árið áður.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegarins um 1.047 milljarðar króna í árslok 2022, heildarskuldir rúmir 542 milljarðar króna (hækkun um 4,3%) og eigið fé tæpir 589 milljarðar króna.