Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, orku- og loftslagsráðherra afhenti nýlega fjórar viðurkenningar Íslenska sjávarklasans til aðila sem eflt hafa samstarf og nýsköpun innan klasans.
Ólöf Tryggvadóttir hlaut viðurkenningu fyrir að nýta fjölbreytt íslenskt hráefni í vörur sínar hjá frumkvöðlafyrirtækinu Eylíf. Þannig hefur Ólöf búið til tækifæri fyrir ýmsa aðra framleiðendur að nýta hráefni úr náttúru Íslands.
Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur hefur áratuga reynslu á sviði sjávarútvegs og á alþjóðavettvangi fiskimála. Þegar Kristján flutti skrifstofu sína í Hús sjávarklasans urðu frumkvöðlar í klasanum þess fljótt varir að með honum kom mikið tengslanet og víðtæk þekking.
Danska markaðs- og almannatengslafyrirtækið Coplus hlaut viðurkenningu Sjávarklasans fyrir að reynast traustur bakhjarl frumkvöðla. Coplus hefur boðið frumkvöðlum í Sjávarklasanum aðstoð án endurgjalds við að koma sér betur á framfæri á innlendum og erlendum mörkuðum. Coplus hefur aðstoðað mörg af öflugustu framleiðslufyrirtækjum landsins í markaðssetningu og ímyndarvinnu á alþjóðlegum mörkuðum.
Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskólans, hlaut viðurkenningu klasans fyrir starf í uppbyggingu náms í fiskeldi og eflingu tengsla klasans við Fisktækniskólann. Allt frá því Ólafur Jón hóf starfsemi Fisktækniskólans hefur hann verið ótrauður við að kynna ungu fólki tækifærin í sjávarútvegi og eflt áhuga og þekkingu á því sviði, ekki síst í fiskeldi. Samstarf klasans og Fisktækniskólans hefur verið einstakt og haft mikla þýðingu fyrir uppbyggingarstarf Íslenska sjávarklasans.