Gullver NS landaði í Hafnarfirði á miðvikudaginn í síðustu viku og aftur í gær.

Í samtali á vef Síldarvinnslunnar segir Hjálmar Ólafur Bjarnason sem var skipstjóri í fyrri túrnum að áhersla hafi verið lögð áhersla á ýsu- og karfaveiði.

„Við reyndum fyrst við ýsu á Eldeyjarbankanum en þar var frekar dræmt. Þá var haldið á Melsekk til að ná í karfa og það gekk vel. Aftur var reynt við ýsu á Eldeyjarbanka í lok túrsins og það gekk mun skár en í fyrra sinnið. Túrinn var tveir og hálfur sólarhringur höfn í höfn og veðrið var ágætt,” er haft eftir Hjálmari Ólafi á svn.is.

Landa fyrir austan fyrir páska

Gullver landaði svo aftur í Hafnarfirði síðdegis í gær. Skipið var með fullfermi, 115 tonn, mest ýsu og karfa.

„Við byrjuðum á Selvogsbanka en fengum mest af ýsunni á Síðugrunni. Síðan var karfinn tekinn á Melsekk. Gert er ráð fyrir að halda til veiða á ný á miðnætti og landa næst fyrir austan fyrir páskahátíðina,” sagði Þórhallur skipstjóri við tíðindamann vefsíðu Síldarvinnslunnar.