Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í vikunni í heimahöfn, Vestmannaey á þriðjudag og Bergur í gær.

Þetta kemur fram á vefSíldarvinnslunnar þar sem rætt er við skipstjórana tvo. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir túrinn hafa verið strembinn.

„Þetta byrjaði afar rólega en á endanum fór allt vel. Það var leiðindafræsingur í túrnum sem hafði auðvitað áhrif. Við byrjuðum á Hvalbaksgrunni og vorum í kringum Gaurasvæðið og á Urðarhrygg. Þarna var sarg af ýsu í birtunni en bókstaflega ekkert á nóttunni. Við færðum okkur á Skerbleyðuna út af Hornafirði og þar fengum við ýsuskot en að því loknu var haldið í Sláturhúsið. Í Sláturhúsinu fékkst rauðspretta og þar auðnaðist okkur að fylla skipið þannig að þetta bjargaðist allt fyrir horn. Þetta var fyrirhafnarsöm veiðiferð en það er varla ástæða til að kvarta mikið,” er haft eftir Birgi Þór á svn.is.

Þolinmæðisverk að reyna við annað en þorsk

Þá er vitnað í Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergi, sem segir að reynt hafi verið að forðast þorsk í veiðiferðinni.

„Við vorum að veiðum á svipuðum slóðum og Vestmannaey. Þetta var Gauraslóðin, Skerbleyðan og Sláturhúsið. Þarna var reynt við ýsu og annað en þorsk og það reyndist vera þolinmæðisverk. Þetta var í rólegri kantinum eða frá því að vera afar rólegt og upp í að vera skítsæmilegt. Það væri allt einfaldara ef mætti alltaf sækja þorsk því nóg virðist vera af honum. Annars komum við með fullt skip að landi og þá hafa menn ekki efni á að bera sig illa. Hér um borð eru menn bara brattir,” er haft eftir Jón á Bergi.