Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. „Við fengum allan aflann á Höfðanum og stoppuðum þar í einungis 31 klukkustund,“ segir Birgir Þór Sverrisson skipstjóri í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.
„Það var kaldafýla allan tímann á meðan við vorum að veiðum en við fengum hins vegar gott veður á landleiðinni. Fiskurinn sem þarna fékkst var svakalega fallegur. Þetta var mest stór þorskur en einnig góð ýsa. Það er oft svona fisk að fá á Höfðanum. Þarna var um vertíðarfisk að ræða, hann var hrognafullur. Það var engin loðna í fiskinum þarna en hins vegar var sandsíli í honum. Við sáum aftur á móti loðnu út af Eystra Horni, þar voru dágóðir loðnuflekkir. Þessi túr var sem sagt stuttur og góður hjá okkur en við vorum fyrsta skipið sem veiddi á Höfðanum eftir bræluna. Þau skip sem komu á eftir okkur fengu lítið og leituðu fljótt á önnur mið,” sagði Birgir Þór.