Hjónin Helga Rakel Arnardóttir og Elís Pétur Elísson eru með umsvifum sínum í veiðum, fiskvinnslu, verslunarrekstri og ýmsu fleiru meðal helstu máttarstólpa atvinnulífsins á Breiðdalsvík. Helga segir kvóta frá Byggðastofnun kjölfestuna í rekstrinum.