Sérfræðingar hafa áhyggjur af makrílstofninum í Norðaustur-Atlantshafi vegna ofveiði og nú hefur Marine Conservation Society, (MSC), mælst til þess að neytendur snúi sér frekar að síld en makríl þegar þeir kaupa sjávarfang í matinn. MSC eru talsvert áhrifamikil samtök í Bretlandi sem vinna með viðskiptalífinu, stjórnvöldum og samfélaginu að því að vernda hafið.

Mæla með síld frekar en makríl

Samtökin segja að neytendur ættu í auknum mæli að velja síld umfram makríl og ástæðan er sú að stöðug ofveiði hefur verið á makríl umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins um heildarafla. Þar eiga sök á máli strandríkin sem að þessum veiðum standa, þ.e. Bretland, Noregur og Færeyjar ásamt Evrópusambandinu og Íslandi. MSC gefur út á hverju ári leiðarvísinn Good Fish Guide þar sem fisktegundum er raðað upp miðað við ofveiði. Makrílstofnar í Norðaustur-Atlantshafi stóðu áður fyrr vel og þóttu veiðarnar sjálfbærar með öllu. Síðastliðin fjögur ár hefur veiðin verið að jafnaði 23% umfram ráðgjöf sérfræðinga.

Hrun handan við hornið

„Það er mikið áhyggjuefni hve mikið fiskstofni hefur hrakað sem áður var sjálfbær. Makrílstofninn er undir gríðarlegu álagi vegna ofveiði fjölmargra þjóða og þess er ekki langt að bíða að stofninn verði ekki lengur sjálfbær,“ segir Alice Moore, framkvæmdastjóri Good Fish Guide hjá MSC.

„Við erum að verða vitni að stöðugt minnkandi stofni og handan við hornið blasir við algjört hrun. Bresk stjórnvöld verða að grípa til tafarlausra að gerða í samvinnu við aðrar þjóðir svo veiðar verði aðlagaðar að vísindalegri ráðgjöf.“

Í Good Fish Guide er stuðst við litakvóta fyrir neytendur og talnakvóta, frá 1 upp í 5, fyrir seljendur. Litakvótinn segir neytendum hvar veiðin og hvernig veiðin fer fram. Grænn litur eða talnakvóti 1-2, felur í sér „besta val“. Gulbrúnn litur, eða talnakvóti 3-4, felur í sér að bæta þurfi um betur í veiðum og rauður litur, 5, að forðast beri að kaupa viðkomandi fisktegund. Good Fish Guide ráðleggur veitingastöðum og stórverslununum að kaupa einungis sjávarfang með merkingu 1-3.

Stöðug ofveiði hefur verið á makríl af hálfu Norðmanna, Íslendinga, Færeyinga og Breta síðustu ár. Veiðar hafa farið langt fram yfir vísindalega ráðgjöf eða allt frá 5% og upp í 80% frá árinu 2009. Á árunum 2020 og 2024 voru veiðarnar að meðaltali 39% umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins.