Vinnsla á síld er hafin á Neskaupstað. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Sagt er frá því að á laugardagsmorgun hafi Barði NK komið inn til Neskaupstaðar með 560 tonn af norsk – íslenskri síld og vinnsla á síldinni hafi byrjað í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar síðastliðna nótt. Rætt er við Þorkel Pétursson, skipstjóra á Barða.
„Við veiddum hana norðan við Bakkaflóadjúp í Langaneskantinum. Við héldum til veiða að lokinni löndun sl. þriðjudag og stefndum í fyrstu í Smuguna til áframhaldandi veiða á makríl. Þá voru hins vegar daufar fréttir af veiðinni þar og því var ákveðið að við myndum skima eftir síld. Við fórum alveg vestur fyrir Melrakkasléttu og byrjuðum að leita þar austur eftir,“ er haft Þorkeli.
Áfram segir Þorkell að strax hafi orðið vart við síld en í fyrstu hafi hún ekki verið í miklum mæli og ekki í þéttum torfum.
„Þegar við nálguðumst Bakkaflóadjúpið komu hins vegar í ljós fallegar síldartorfur. Þær voru ekki mjög stórar en býsna þéttar. Við tókum þarna tvö hol. Í fyrra holinu var dregið í þrjá og hálfan tíma og þá fengust 330 tonn. Í seinna holinu var dregið í tvo tíma og þá fengust 230 tonn,“ segir Þorkell á svn.is.
„Mér sýnist þetta vera mjög góð síld og er meðalvigtin 370 – 380 grömm. Það er afar lítil áta í henni og ég geri ráð fyrir að hér sé um gott hráefni að ræða fyrir vinnsluna. Þetta er mjög fallegur fiskur,“ segir Þorkell einnig við tíðindamann Síldarvinnslunnar.