Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðgjöf um að engar loðnuveiðar verði heimilaðar á fiskveiðiárinu 2023/2024 og byggir ráðgjöfin á upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2022. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun árs 2024.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 23. ágúst til 23. september.

Tíðindin hljóta að teljast mikil vonbrigði eftir vel heppnaða loðnuvertíð á síðasta fiskveiðiári og vonir margra um betri tíðindi á yfirstandandi fiskveiðiári.

Leiðangurinn er talinn hafa náð yfir útbreiðslusvæði stofnsins. Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Loðnan var nokkuð jafndreifð á svæðinu og mælingin hennar hafði fremur lágan breytistuðul.

Heildarmagn loðnu mældist tæp 697 þúsund tonn og þar af var stærð veiðistofns metin 325 þúsund tonn. Magn ókynþroska í fjölda var um 48 milljarðar en samkvæmt samþykktri aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2024/2025.

Gögn um niðurstöður ungloðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafsaflamark vertíðarinnar 2024/2025.

Loðnuráðgjöfina má nálgast hér.