Frá og með 1. september mun Eimskip bæta við vikulegum viðkomum í Rotterdam í Hollandi á Gulu siglingaleiðinni. Með breytingunni opnast bein tenging frá Vestmannaeyjum og Þórshöfn í Færeyjum til Rotterdam, auk þess sem Reyðarfjörður tengist í gegnum umlestun í Færeyjum.

Styður vaxandi laxeldi

Siglingatíminn til Rotterdam frá Austurlandi og Vestmannaeyjum er um fjórir dagar, sem tryggir meðal annars afhendingu á mörkuðum í Frakklandi og Hollandi á þriðjudögum. „Nýja tengingin eflir útflutning íslensks sjávarfangs, styður ört vaxandi laxeldi og bætir þjónustu við frystar og saltaðar afurðir,“ segir í fréttatilkynningu frá Eimskip.

Hraðari leið fyrir ferskmeti

„Viðbrögð viðskiptavina okkar hafa verið bæði góð og sterk, þeir sjá mikla möguleika í þessari tengingu sem styrkir ferskfisksflutninga til meginlands Evrópu. Þetta er jákvætt og framsækið skref í þróun þjónustu Eimskips og eflingu tengsla við evrópska markaði í gegnum okkar áreiðanlega siglingarkerfi,” segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptastýringar hjá Eimskip.

Fjórar áratugir í Rotterdam

Skrifstofa Eimskip í Rotterdam hefur starfað frá árinu 1985 og starfsfólkið þar býr yfir víðtækri reynslu í alhliða flutningsþjónustu, tollamálum og áframflutningi. ,,Með þessari viðbót á Gulu leiðinni geta viðskiptavinir, eftir sem áður, treyst á framúrskarandi þjónustu og enn skilvirkari tengingar við lykilmarkaði á meginlandi Evrópu,” segir Björn.