Byggðastofnun auglýsti í gær viðbótaraflaheimildir án vinnsluskyldu fyrir Grímsey, allt að 300 þorskígildistonn fyrir fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026 og 2026/2027.

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem haft er eftir Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að það séu ákaflega ánægjulegar fréttir að Grímseyingum hafi verið veitt undanþága frá vinnsluskyldu þegar komi að úthlutun á sértækum byggðakvóta.

Annars hefðu forsendur fyrir byggðinni brostið

„Það er mikilvægt fyrir íbúa Grímseyjar að búa við fyrirsjáanleika eins og önnur samfélög og þessi niðurstaða verður til þess að renna styrkari stoðum undir byggðina í eyjunni. Ef sjómenn í Grímsey hefðu ekki lengur heimild til að stunda fiskveiðar eins og þeir hafa gert mann fram af manni frá því land byggðist þá væru forsendur fyrir búsetu þar brostnar. Sjávarútvegur í Grímsey hefur átt undir högg að sækja og ég gleðst yfir því að undanþága frá vinnsluskyldu sé veitt því fiskinum þarf alltaf að koma til lands sem fyrst, með einum eða öðrum hætti, svo verðmæti hans séu sem mest,“ er haft eftir Ásthildi.

Byggir á breytingu á reglugerð

Eins og fram hefur komið í Fiskifréttum var reglugerð nýlega breytt í matvælaráðuneytinu þannig að Byggðastofnun gæti úthlutað kvóta án vinnsluskyldu.

Fram kemur að Grímseyingar geti sótt um viðbótaraflaheimildir í gegnum umsóknargátt á heimasíðu Byggðastofnunarinnar fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 10. desember 2024.

Vilja trúverðug áform og trausta rekstrarsögu

Í auglýsingu Byggðastofnunar vegna Grímseyjar segir að endanlegt mat á samstarfsaðilum verði byggt á eftirfarandi þáttum:

  • trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi
  • fjölda heilsársstarfa
  • sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu
  • öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina
  • jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið
  • traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda
  • lönduðum botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2024.