Það er ekkert lát á góðri loðnuveiði. Skipin voru mörg að veiðum við Reykjanesið í gær og eins var veitt fyrir austan Vestmannaeyjar. Í morgun var byrjað að kasta við Reykjanes og heyrði tíðindamaður heimasíðu Síldarvinnslunnar í Hjörvari Hjálmarssyni, skipstjóra á Berki NK.

„Við fengum gott kast í morgun um 10 mílur vestur af Hafnarleirnum og fylltum. Um borð eru komin rúm 2.900 tonn. Þennan afla fengum við í sex köstum. Hér eru öll skip að vinna og það er mikið að sjá af loðnu. Framhaldið lítur líka vel út. Það er nýtt efni að koma á þessar slóðir og svo eru einhverjar fréttir af vestangöngu. Það er sagt að það sé komin loðna í Víkurálinn. Veðurspáin framundan er hagstæð og það eykur líkurnar á því að kvótinn náist. Það er því full ástæða til bjartsýni. Þessi vertíð hefur verið einstaklega góð, mikið að sjá af loðnu og veðrið hagstætt. Þetta er miklu betri vertíð í alla staði en vertíðin í fyrra þó kvótinn sé minni. Það virðist einfaldlega mun meiri loðna vera á ferðinni núna,“ segir Hjörvar.

Hrognavinnslan í Neskaupstað gengur vel. Nú er verið að vinna hrogn úr Beiti NK og síðan verður unnið úr Vilhelm Þorsteinssyni EA og Hákoni EA. Bjarni Ólafsson AK er á landleið með fullfermi en Barði NK er nýkominn á miðin. Grænlensku skipin Polar Amaroq og Polar Ammassak fengu góðan afla fyrir austan Vestmannaeyjar í gær en eru nú komin að Reykjanesi.