Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar kom til hafnar í Reykjavík í dag. Skipið var flutt hingað til lands í Brúarfossi, en það er smíðað hjá KewaTec í Finnlandi. Formleg afhending skipsins verður í Vestmanneyjum laugardaginn 1. október þar sem skipið verður með heimahöfn. Björgunarskipið mun fá nafnið Þór.

Örn Smárason, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Landsbjörgu, segir að björgunarskipinu verði siglt til Landeyjahafnar miðjan dag á morgun. Þar verður það bundið við bryggju fram á laugardag og siglt þá með viðhöfn til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Þar verður skipið formlega afhent og því gefið nafn. Örn segir í skensi að björgunarskipið hefði þurft að vera helmingi stærra til að taka á móti öllum þeim Vestmanneyingum sem buðu sig fram til að sigla skipinu til Eyja. Ljóst er að Þórs er beðið með eftirvæntingu í Eyjum en þangað er skipið væntanlegt um miðjan dag. Eyjamenn munu þó þurfa að sjá af því í nokkra daga um miðjan október þegar því verður siglt aftur til höfuðborgarinnar.

Þetta er fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur gengið frá kaupum á en um er að ræða stærsta fjárfestingaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar til þessa. 142,5 milljón króna styrkur frá Sjóvá fer til smíði á þessum fyrstu þremur björgunarskipum en til stendur að endurnýja öll 13 björgunarskip félagsins. Með skipunum styttist viðbragðstími Landsbjargar á sjó um helming í flestum tilfellum.

Með nýju björgunarskipunum styttist viðbragðstíminn um helming.
Með nýju björgunarskipunum styttist viðbragðstíminn um helming.
© Jón Páll Ásgeirsson (Jón Páll Ásgeirsson)


Með nýjum björgunarskipum verður bylting í viðbragðstíma og aðbúnaði fyrir áhafnir og skjólstæðinga. Skipin skipta miklu máli fyrir öryggi sjófarenda í kringum landið og eru einnig hönnuð með það í huga að geta aðstoðað við björgunarverkefni á landi s.s. með því að tryggja fjarskipti á fáförnum stöðum ef þess þarf.


„Smíði nýju skipanna er stærsta fjárfesting sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur ráðist í frá upphafi. Svona veglegur styrkur frá Sjóvá er afrakstur áratuga langs og trausts samstarfs, og gerir okkur kleift að hefja smíði fyrstu þriggja skipanna,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Kristján segir að styrkurinn frá Sjóvá til smíða þessara þriggja björgunarskipa, sem búið að er ganga frá kaupum á, sé afar mikilvægur og fáheyrt sé að svo rausnarlegar gjafir berist til sjálfboðaliðasamtaka.

„Við viljum þakka Sjóvá fyrir þetta rausnarlega framlag. Það kom inn í verkefnið á afar mikilvægum tíma og gerði það að verkum að við gátum hafið smíði á þessu fyrsta skipi. Við erum þakklát fyrir traustið sem Sjóvá sýndi okkur með því að leggja svo mikið fram þegar skipin voru aðeins teikningar á blaði.“

Munu gjörbylta öryggi sjófarenda á hafinu í kringum landið

„Við hjá Sjóvá erum stolt og ánægð að geta stutt Landsbjörgu í þessu stóra og mikilvæga verkefni. Það er mikið gleðiefni fyrir okkur Íslendinga að fá þessi nýju björgunarskip sem munu gjörbylta öryggi sjófarenda á hafinu í kringum landið og þjónusta byggðir þess um leið. Við höfum sem aðalstyrktaraðili um áratuga skeið átt afar traust og gott samstarf við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu og er okkur því sérstakt ánægjuefni að styðja við þeirra mikilvæga starf með þessum hætti og sinna þannig um leið samfélagslegri ábyrgð okkar," segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.

Hvert nýju skipanna kostar um 285 milljón krónur. Með samkomulagi sem gert var í janúar 2021 milli ríkis og Landsbjargar var tryggð allt að helmings fjármögnun þessara skipa. Slysavarnafélagið Landsbjörg hafði safnað í nýsmíðasjóð í nokkurn tíma sem tryggði enn frekar getu þess til að ráðast í þetta verkefni.

Nýju björgunarskipin þrjú eru smíðuð hjá KewaTec í Finnlandi. Áætluð afhending á öðru skipinu er fyrir árslok 2022 á Siglufirði. Smíði á þriðja skipinu hefst síðan í janúar 2023 og afhending á því verður eftir mitt það ár. Áfram er unnið að fjármögnun 10 björgunarskipa til viðbótar enda er það markmið Landsbjargar að endurnýja öll þrettán björgunarskip sín.