Aðstoðarbeiðni bars í morgun frá litlum fiskibát þegar upp kom bilun í stýrisbúnaði bátsins. Áhöfn björgunarbátsins Fiskakletts í Hafnarfirði var í kjölfarið kölluð út rétt upp úr átta í morgun.

Fiskaklettur var kominn að bátnum, sem þá var rétt norður af Syðra Hrauni í Faxaflóa, um hálf tíu í morgun og kom áhöfnin þá taug á milli báta og stefnan var svo sett inn til Hafnarfjarðar.

Þangað kom Fiskaklettur með fiskibátinn í hádeginu, þar sem hægt var að landa þeim afla sem um borð var.

Þetta var önnur aðstoðarbeiðnin á tveimur dögum því í gær, á þjóðhátíðardaginn, barst aðstoðarbeiðni frá hópi göngufólks þegar einn úr hópnum hafði slasast á fæti í fjallshlíð ofan við bæinn Grímkelsstaði, suður af Þingvallavatni í Grafningnum, á svokallaðri Kattartjarnarleið.

Björgunarsveitir frá Hveragerði, Selfossi og úr Árnesi fóru á vettvang með utanvega hjól, mannskap og búnað til að flytja sjúkling. Komið var að hópnum og þeim slasaða rétt undir hádegið og honum komið fyrir í sjúkrabörum og hann búinn undir flutning. Sérútbúnar sjúkrabörur með hjóli undir voru notaðar og gekk flutningur vel að sjúkrabíl sem beið neðan hlíðarinnar.