Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., ritaði í dag bréf til starfsfólks þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni um að láta af störfum sem forstjóri félagsins í júní næstkomandi. Bréfið er meðfylgjandi.
„Ég hef tekið ákvörðun um að láta af störfum sem forstjóri Samherja hf. eftir að hafa gegnt því starfi í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983. Starfslok verða í næsta mánuði.
Stjórn Samherja hf. gekk í vikunni frá ráðningu Baldvins Þorsteinssonar í starf forstjóra. Eins og þið vitið er Baldvin einn af stærstu hluthöfum Samherja hf. og hefur verið stjórnarformaður félagsins frá 2023.
Sjávarútvegur hefur verið mitt ævistarf og það hafa verið sönn forréttindi að byggja upp þetta félag með ykkur á undanförnum rúmum fjórum áratugum. Á þessum tímamótum er margs að minnast á löngum ferli. Mér finnst við hæfi í þessu bréfi til ykkar að stikla á stóru í rekstri félagsins.
Sagan hófst með einum togara
Saga Samherja í núverandi mynd hófst árið 1983 þegar við frændur, ég og bræðurnir Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir, keyptum útgerðarfélagið Samherja hf. í Grindavík. Helsta eign þess félags var togarinn Guðsteinn GK 140 sem hafði verið smíðaður í Póllandi níu árum áður. Eftir þessa fjárfestingu var togarinn fluttur til Akureyrar þar sem við réðumst í miklar breytingar á skipinu. Þær fólust í því að umbreyta skipinu í frystitogara sem var nefndur Akureyrin EA 10 og fór í sína fyrstu veiðiferð í desember 1983. Markaði þetta upphaf rekstrar Samherja í núverandi mynd.

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Frá þeim tíma hefur Samherji vaxið og dafnað og er í dag eitt stærsta og öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Samherji er lóðrétt samþætt alhliða sjávarútvegsfyrirtæki sem stundar veiðar og vinnslu, sölu og landeldi. Félagið hefur ráðist í miklar fjárfestingar í fiskvinnslu á undanförnum árum og rekur eina fullkomnustu landvinnslu í heimi fyrir botnfisk á Dalvík. Samherji hefur alltaf haft höfuðstöðvar sínar á Akureyri og stærstan hluta starfseminnar á Eyjafjarðarsvæðinu.
Saga nýsköpunar og frumkvöðlastarfs
Frá öndverðu hefur verið lögð áhersla á að verja hagnaði félagsins til fjárfestinga í rekstrinum með endurnýjun skipa, byggingu nýrra vinnsluhúsa og innleiðingu á nýrri tækni og búnaði. Miklar fjárfestingar í rekstrinum endurspeglast í háu eiginfjárhlutfalli félagsins.
Margar þeirra tæknilausna sem notaðar eru í starfsemi Samherja voru þróaðar í náinni samvinnu félagsins og íslenskra nýsköpunar- og hátæknifyrirtækja sem hafa síðan selt búnaðinn á alþjóðlegum markaði með góðum árangri. Hefur þannig verið unnið mikið frumkvöðlastarf hjá félaginu alla tíð.
Á árinu 1994 hóf Samherji fjárfestingar í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum og var um tíma með mikil umsvif í veiðum og vinnslu erlendis. Átti félagið sjávarútvegsfyrirtæki víða í Evrópu og Norður-Ameríku áður en samstæðu félagsins var skipt upp á árinu 2018. Fjórum árum síðar, eða í lok árs 2022, var erlendur hluti starfseminnar seldur og hafa hin erlendu sjávarútvegsfyrirtæki verið undir eignarhaldi Alda Seafood í Hollandi frá þeim tíma.
Framtíð félagsins er björt
Í starfi mínu sem forstjóri hefur skipt sköpum það nána og góða samstarf sem ég hef átt við aðra stofnendur og hluthafa félagsins. Vil ég þar sérstaklega nefna Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja, Kolbrúnu Ingólfsdóttur, Helgu Steinunni Guðmundsdóttur og þeirra fjölskyldur. Segja má að náið samstarf okkar Kristjáns frænda, og það traust sem hefur ríkt á milli okkar alla tíð, hafi verið ákveðin kjölfesta í rekstrinum.
Ég ákvað fyrir löngu síðan að ég ætlaði að hætta sem forstjóri á mínum forsendum áður en ég yrði gamall og leiðinlegur. Eftir rúma fjóra áratugi í svona starfi er eðlilegt að líði að starfslokum. Allt hefur sinn tíma og sjálfum finnst mér þessi tímasetning heppileg. Ekki dugar að biða eftir lygnum sjó, í þessari grein kemur sá tími líklega seint. Þegar við frændurnir hófum rekstur þá komst skrifstofan fyrir heima í eldhúsi en í dag starfa rúmlega 800 manns hjá samstæðu Samherja. Ég er mjög stoltur af þeim stóra hópi.
Sjávarútvegur hefur verið mín ástríða og ævistarf. Ég fékk minn fyrsta launaseðil 12 ára hjá Útgerðarfélagi Akureyringa sem fagnar áttatíu ára afmæli í næstu viku. Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum, ekki síst vegna örra tæknibreytinga. Ég hef verið svo lánsamur að hafa fengið að lifa og hrærast í þeim sem beinn þátttakandi.
Á þessum tímamótum er mér efst í huga þakklæti fyrir samstarf með öllu því öfluga og hæfileikaríka starfsfólki sem við bárum gæfu til að ráða til Samherja. Þetta fólk, þið öll, er hjartað í félaginu og án ykkar framlags hefði farsæl uppbygging þess aldrei orðið að veruleika. Með ykkur öllum er ég sannfærður um að framtíð félagsins sé björt að því gefnu að stjórnvöld tryggi atvinnugreininni stöðugt rekstrarumhverfi.
Þótt þessi ákvörðun mín marki kaflaskil er ég ekki alveg sestur í helgan stein enda sit ég í stjórnum félaga. Þar má nefna Samherja fiskeldi ehf. og Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað þar sem ég hef verið stjórnarformaður frá 2003.“
Undir bréfið skrifar Þorsteinn Már Baldvinsson.