Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur að undanförnu annast eftirlit á síldarmiðum austur af landinu. Þar hafa nokkur færeysk síldveiðiskip verið að veiðum.

Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

„Lögum samkvæmt sinnir Landhelgisgæslan öflugu eftirliti með erlendum fiskiskipum innan efnahagslögsögunnar í samstarfi við Fiskistofu og sjávarútvegsráðuneytið.

Eftirlitið fer þannig fram að áhöfnin á varðskipinu fer um borð í skipin og kannar aflasamsetningu og framkvæmir tegundagreiningu á aflanum,“ segir á lhg.is.

Í myndbandi sem sjá má á vef Landhelgisgæslunnar er gefin innsýn í hvernig eftirlit sem þetta fer fram hjá áhöfnum Gæslunnar.