Framkvæmdir við 5.600 fermetra nýbyggingu á Vinnslustöðvarreitnum ganga samkvæmt áætlun. Í byggingunni verður saltfiskvinnsla á neðri hæð og innvigtun uppsjávarafla á efri hæð.

„Við erum að stefna á að geta byrjað að nota neðri hæðina í janúar fyrir saltfiskinn. Í dag er platan á fyrstu hæðinni á lokametrunum í þrónni og í portinu er að verða klárt í að byrja á plötunni á 1 hæð,“ er haft eftir Willum Andersen, tæknilegum rekstrarstjóra Vinnslustöðvarinnar, á vef fyrirtækisins.

Lagnasúpa í grunninum

„Þeir vinda sér svo í að steypa plötuna á annarri hæð og hækka veggina að austan um leið og platan á fyrstu hæð verður klár. Þar sem við erum að notast við útveggina í þrónni er uppbyggingin ekki svo seinleg. Mesta vinnan hefur verið að leggja lagnasúpu undir plötuna í grunninn til að uppfylla allar kröfur um hreinsun og frádælingu,“ segir Willum ennfremur á vsv.is.

Í færslunni á vef Vinnslustöðvarinnar má bæði sjá myndband Halldórs B. Halldórssonar sem fór um framkvæmdasvæðið og myndasyrpu Óskars Péturs Friðrikssonar frá svæðinu.