Kolmunnaskipin Beitir NK, Börkur NK og Vilhelm Þorsteinsson EA komu til löndunar í Neskaupstað um síðustu helgi að aflokinni veiðiferð í færeysku lögsöguna. Beitir landaði 1.000 tonnum, Börkur 1.300 tonnum og Vilhelm Þorsteinsson 1.400 tonnum. Að sögn Hafþórs Eiríkssonar verksmiðjustjóra er um ágætt hráefni að ræða. Verksmiðjan hóf vinnslu á sunnudagsmorgun og gengur hún vel.
Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra á Beiti og spurði fyrst hvernig veiðin hefði gengið fyrir sig.
Næst gæti það verið loðna
„Það var ekki mjög mikið að hafa að þessu sinni. Holin hjá okkur gáfu frá 40 tonnum og upp í 350 tonn og það var yfirleitt lengi dregið. Veitt var bæði sunnan og vestan við Færeyjar, mest í Ræsinu vestan við eyjarnar. Þó ekki hafi verið mikill kolmunni á ferðinni þarna núna þá getur það breyst á skömmum tíma. Auðvitað bíðum við frétta af nánari loðnuleit og notum tímann til að skipta um togvíra. Næst á dagskrá gæti verið loðna en eins þurfa menn að vera tilbúnir í að veiða kolmunna niður við Rockall,” sagði Ólafur Gunnar.