Landssamband smábátaeigenda hefur vakið athygli á því að aukning í VS-afla í þorski er um 122% á fyrstu tveimur tímabilum yfirstandandi fiskveiðiárs miðað við sömu tímabil fiskveiðiárið 2021/2022. Þróunin hafi verið lóðbeint upp á við og haldist hún óbreytt gæti VS-þorskafli endað í 5 þúsund tonnum sem sé varlega áætlað tvöfalt meira en hefði þurft að bæta við leyfilegan þorskafla strandveiðibáta á síðasta ári til að tryggja 12 daga í hverjum mánuði, alls 48 daga.
„Við skoðun á samanlögðum VS-afla í þorski á fyrstu tveimur tímabilunum á yfirstandandi fiskveiðiári og sama tíma á fiskveiðiárinu 2021/2022 hefur þróunin verið lóðbeint upp á við, aukningin nemur 122%,“ segir í umfjöllun á heimasíðu Landssambandsins.
VS-afli er afli sem landað er utan aflamarks þess skips sem veiðir aflann. Heimildin takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla. VS-aflaheimildin er takmörkuð við hvern ársfjórðung og óheimilt er færa uppsafnað milli fjórðunga. Ýsuafli og meðafli við grásleppuveiðar er undanþeginn á tímabilunum.
Þorskur út um allan sjó
VS-afla er skylt að selja á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og skiptist 20% af andvirðinu milli útgerðar og áhafnar samkvæmt kjarasamningi. Það sem þá er eftir fer til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins að frádregnum kostnaði og hafnargjöldum.
„Fjölmargar skýringar geta verið á þessari aukningu. Sú sem kemur fyrst upp í hugann er að leyfilegur heildarafli í þorski er ekki í neinu samræmi við það sem sjómenn upplifa. Þorskur er út um allan sjó. Þá kemur jafnframt upp í kollinn að einhver eða einhverjir sjái sér leik á borði og noti þessa tilhliðrun í lögunum til að ná fram meiri hagnaði án þess að ónægar veiðiheimildir kalli eftir því.“
Landssambandið vekur athygli á að VS-afli bætist við leyfilegan heildarafla. Haldi sama þróun áfram geti VS þorskafli endað í fimm þúsund tonnum í lok fiskveiðiársins sem er varlega áætlað tvöfalt meira en hefði þurft að bæta við leyfilegan þorskafla strandveiðibáta á síðasta ári til að tryggja 12 daga í hverjum mánuði, alls 48 daga.