Klettur, félag smábátamanna á svæðinu frá Ólafsfirði til Tjörness, hélt félagsfund síðastliðinn laugardag þar sem grásleppumál voru mjög til umræðu.  Þar ítrekaði fundurinn vilja sinn til þess að lágmarksfjöldi sóknardaga á komandi vertíð verði 32 talsins.

Ennfremur var samþykkt að óska eftir því við sjávarútvegsráðherra að hann fresti upphafi vertíðar þar til endanleg niðurstaða um fjölda veiðidaga liggur fyrir.

Samkvæmt útgefinni reglugerð á vertíðin að hefjast 20. mars, en verði ráðherra við samþykkt Klettsmanna er vart að vænta þess að vertíðin hefjist fyrr en undir mánaðarmót.

Frá þessu er skýrt á vef Landssambands smábátaeigenda.