Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS), sem haldinn var í dag var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 10%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi frá og með deginum í dag, 2. desember.
Sjá verðtöflu á vef Verðlagsstofu skiptaverðs.