Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands, Öldunnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Snæfellinga og Verkalýðsfélags Vestfjarða lýsa yfir áhyggjum sínum vegna hugmynda um uppboðsleið í sjávarútvegi. Þetta kemur fram í viðtölum sem birtast á myndbandi á vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Sjá HÉR.
Áður hafa forustumenn samtaka sjómanna og skipstjórnenda lagst alfarið gegn hugmyndum um uppboð aflaheimilda og telja þá leið vega að starfsöryggi sjómanna og hagsmunum þjóðarinnar. Þessi sjónarmið komu meðal annars fram í viðtölum við Árna Bjarnason, forseta Far- og fiskimannasambandsins, og Valmund Valmundsson, formann Sjómannasambands Íslands, í Fiskifréttum, sjá HÉR.