Í ársfjórðungsskýrslu stórfyrirtækisins Austervoll Seafood, sem er með starfsemi í Noregi, Perú og Chile, kemur fram að verð á fiskimjöli og lýsi muni að líkindum haldast hátt á þessu ári. Ástæðan sé samdráttur í framleiðslu og minni birgðir.
Framleiðsla fiskimjöls í heiminum dróst saman um 14% í ár miðað sama tíma í fyrra, aðallega vegna 36% minni framleiðslu í Chile en einnig varð samdráttur í Perú. Þá varð 22% samdráttur í lýsisframleiðslu hjá sex framleiðendum innan Alþjóðasamtaka mjöl- og lýsisframleiðenda (IFFO).
Í skýrslunni kemur fram að birgðir í heiminum af mjöli og lýsi séu takmarkaðar.
Áætlað er að veiðiheimildir bræðslufisks í heiminum verði 4-5 milljónir tonna á árinu 2013.
Þetta kemur fram á vefnum Undercurrentnews.com