Skip HB Granda eru hætt á síldveiðum þetta árið en við taka veiðar á kolmunna þar til að loðnuvertíð hefst. Það var Venus NS sem kom með síðasta síldarfarminn til Vopnafjarðar en lokið var við löndun í lok síðustu viku.
Frá þessu segir á heimasíðu HB Granda.
Að sögn Ingimundar Ingimundarsonar, rekstrarstjóra uppsjávarskipa HB Granda, voru Venus og Víkingur með alls um 23.000 tonna makrílafla í sumar og í haust og um 17.000 tonn af síld úr norsk-íslenska síldarstofninum og af íslenskri sumargotssíld.
Venus tók veiðarfæri um borð í byrjun vikunnar og er á stími áleiðis á kolmunnamiðin út af Austfjörðum. Víkingur er hins vegar á miðunum.
Fyrirhugað er að hefja vinnu í bolfiskvinnslu HB Granda á Vopnafirði á mánudaginn en sú vinnsla er starfrækt á milli uppsjávarvertíða.