Vélfag heldur áfram að stækka og opnar fimmtu starfsstöðina á Íslandi sem er staðsett við Njarðarnes 3-7 á Akureyri, þar sem Trésmiðjan Börkur var áður til húsa. Verksmiðjan sem er 2.541,5 fm á stærð mun hýsa framleiðslu, lager og samsetningu auk skrifstofur.

Baldursnes 2 sem eru höfuðstöðvar Vélfags eru í næstu götu og nú standa flutningar á framleiðsluvélum yfir í nýja húsnæðið. Baldursnesið verður áfram notað fyrir þróun og skrifstofur.

Í Baldursnesi verða áfram skrifstofur og þróunardeild Vélfags.
Í Baldursnesi verða áfram skrifstofur og þróunardeild Vélfags.

Gengið hefur verið frá ráðningu Elvars Stefánssonar í stöðu framleiðslustjóra hjá Vélfagi en hann hefur starfað hjá Vélfagi frá árinu 2015. Elvar er vél- og orkutæknifræðingur frá HR auk þess að vera með sveinspróf í rennismíði.

Elvar er bjartsýnn á framhaldið. „Það eru mjög spennandi tímar framundan og að flytja framleiðsluna yfir í stærra húsnæði er í takt við aukinn vöxt Vélfags og velgengni á undanförnum árum.“

Elvar Stefánsson, framleiðslustjóri Vélfags.
Elvar Stefánsson, framleiðslustjóri Vélfags.

Vélfag framleiðir og þróar búnað og tæki fyrir fiskvinnslu jafnt á landi sem sjó. Nýjasta tæki þeirra er UNO fiskvinnsluvélin.