Úthafsrækjustofninn hefur verið í lægð á síðustu árum og vísitala veiðistofns í nýafstöðnum leiðangri er sú lægsta sem mælst hefur síðan rannsóknir á úthafsrækju hófust árið 1988, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar .
Nýlega lauk árlegum úthafsrækjuleiðangri Hafrannsóknastofnunar fyrir norðan og austan land. Tilgangur leiðangursins er að meta stofnstærð og nýliðun úthafsrækju.
Mikið var af þorski á öllu rannsóknasvæðinu. Þorskseiði fengust í nær öllum togum vestan við Grímsey, en aldrei hefur fengist jafn mikið af þorskseiðum í úthafsrækjuleiðangri og í ár. Hins vegar var magn grálúðu mjög lítið.
Mælingin fór fram á Bjarna Sæmundssyni 1.-12. ágúst. Í leiðangrinum voru teknar 86 stöðvar eftir fyrirfram ákveðnu stöðvaplani. Leiðangursstjóri í leiðangrinum var Ingibjörg G. Jónsdóttir og skipstjóri var Ingvi Friðriksson.