Í nótt kom Mánaberg ÓF 42 til hafnar í Þorlákshöfn með góðan úthafskarfaafla af Reykjaneshrygg og er honum landað í dag. Í skipinu eru 257 tonn af afurðum, sem svarar til 436 tonna afla upp úr sjó. Mánaberg millilandaði í Reykjavík 20. júní sl. svipuðu magni og hélt þaðan á úthafskarfamiðin og kláraði veiðiferðina, að því er fram kemur á vef Ramma.
Heildaraflinn í þessum tvískipta úthafskarfatúr er því um 870 tonn upp úr sjó að verðmæti kr. 300 milljónir.
Úthafskarfaveiðar hafa gengið vel á vertíðinni og varð heildarafli Mánabergs 1.311 tonn. Þegar hafnarfríi áhafnarinnar lýkur er næsta verkefni að reyna við makrílinn í fyrsta sinn. Ágæt makrílveiði hefur verið úti fyrir öllu Suðurlandi að undanförnu.